Sveimérþá

Berlín er skemmtileg borg. Við erum núþegar búin að halda tvenna tónleika hér, og í kvöld er fríkvöld, sem við ætlum að eyða í að halda HAM-partý. Þýskur vinur okkar er mikill HAM-aðdáandi og heimtar að elda oní okkur ef við spilum HAM og aðra góða íslenska tónlist, og auðvitað verðum við að bón hans. Annars er sól og blíða og við hljólum hér um í sæluvímu. Fáum gott að borða og sofum vel og lengi. Hef ekki enn rekist á neinn stressaðan. Kannski er allt stressið á Íslandi bundið við bílaumferð, og er ég alvarlega að hugsa um að hætta að nota það farartæki nema í brýnustu neið. Ef maður þarf ekki að hugsa um allt sem tengist umferð og bílum er bara helmingurinn af stressfaktorunum farnir. Sveimérþá.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband